Skip to main content

admin

Skyggnst til baka

Birt 2011


Nr. 1

Myndin er úr safni Austra og er tekin árið 1993. Ljósmyndari: Arndís Þorvaldsdóttir.

Heimir Magnússon, loðdýrabóndi á Svínabökkum í Vopnafirði, með krossmink.

Nr. 2

Myndin er úr safni Austra. Ljósmyndari: Sólveig Dagmar Bergsteinsdóttir.

Hjörtur Kjerúlf, bóndi á Hrafnkelsstöðum í Fljótsdal, með vænan hreintarf árið 1990.

Nr. 3

Þessi mynd birtist í Austra vorið 1989 undir titlinum „Vorverk við sjóinn“. Hún mun vera tekin á Borgarfirði eystra af Geirlaugu Sveinsdóttur blaðamanni og er maðurinn sem stendur Skúli Sveinsson frá Hvannstóði. Sá sem dundar við bátinn er óþekktur.

Nr. 4

Myndin er úr safni Austra. Ljósmyndari: Örvar Þ. Einarsson.

Jóhannes Egilsson um borð í bát sínum Anný í höfninni í Neskaupstað haustið 1986.

Nr. 5

Myndin er úr safni Austra. Ljósmyndari: Örvar Þ. Einarsson.

Ólafur Jónsson dýralæknir með særðan fálka. Fálkinn var nokkra daga til lækninga hjá Ólafi veturinn 1986, en talið var að hann hefði skaddast við að fljúga á vír.

Nr. 6

Myndin er úr safni Austra, en ljósmyndari er óþekktur.

Tekið á móti Norrænu með lúðrablæstri í fyrstu ferð vorið 1990.

Nr. 7

Ásgeir Arngrímsson bóndi í Brekkubæ á Borgarfirði við fjárdrátt. Myndin birtist í Austra sumarið 1988 og skreytti hún grein um nýja markaskrá sem væntanleg var þá með haustinu. Tökuár óvisst og ljósmyndari óþekktur.

Nr. 8

Myndin er úr safni Austra. Ljósmyndari: Sigurður Björn Blöndal.

Bára, Vala og Anna gæða sér á ís í garðinum bak við Skógarnesti, þ.e. Shell-skálann á Egilsstöðum, sumarið 1997.

Nr. 9

Myndin er úr safni Austra. Ljósmyndari: Arndís Þorvaldsdóttir.

Í Eyjólfsstaðaskógi sumarið 1996. Myndin er við athöfn þegar skógarlundi Lionsklúbbsins Múla var gefið nafnið Jónasarlundur til heiðurs elsta félaganum Jónasi Péturssyni. Á myndinni eru talið frá vinstri: Ástráður Magnússon, Stefán Pálsson, Gísli Sigurðsson og Jónas Pétursson.

Nr. 10

Myndin er úr safni Austra. Ljósmyndari: Marinó Marinósson.

Hitað upp fyrir Kvennahlaup á Egilsstöðum sumarið 1996.

Nr. 11

Myndin er úr safni Austra. Ljósmyndari: Sigurður Björn Blöndal.

Gjörningurinn „Fullt hús“ eftir Sigurð Guðmundsson á Seyðisfirði sumarið 1997. Listaverkið og umgjörð þess gáfu Seyðfirðingar sér í tilefni af 100 ára afmæli bæjarins. Hestamennirnir eru feðgarnir Magnús Stefánsson og Stefán Þorvarðarson.

Nr. 12

Úr myndasafni Austra. Ljósmyndari: Örvar Þ. Einarsson.

Frá opnun brúar sem félagar í Skógræktarfélagi Austurlands smíðuðu yfir Kaldá í Eyjólfsstaðaskógi. Árið er 1986. Á borðann klippir Orri Hrafnkelsson. Að baki honum talið frá vinstri: Helgi Halldórsson, Sigurður Símonarson, bæjarstjóri, Björn Andrésson, Dagur Kristmundsson, Magnús Sigurðsson og Þórarinn Einarsson.

Nr. 13

Myndin er úr safni Rúv á Austurlandi. Ljósmyndari óþekktur.

Inga Rósa Þórðardóttir, Örn Ragnarsson og Friðrik Stefánsson tæknimaður að ljúka þriggja vikna ferðalagi um Austfirði sumarið 1986. Unnið var að gerð þáttarins Ríkisútvarpið á hringveginum og hófst ferðin í Lóninu og endaði á Bakkafirði þar sem útvarpsbíllinn og tæknimaðurinn voru kvaddir. Skömmu seinna hóf útvarpið rekstur deildar á Austurlandi sem Inga Rósa veitti forstöðu.

Nr. 14

Úr myndasafni Austra. Ljósmyndari er óþekktur.

Ingjaldur Ragnarsson við farartæki sem hann smíðaði árið 1996 og notaði m.a. til siglinga á Lagarfljóti. Aðspurður sagði hann byggingarefnið hafa verið: tvo toppa af landrover bílum, mótor úr fíatbíl, valdar spýtur frá Völundi og flugvélaskrúfu úr Tf Kló.

Nr. 15

Myndin er úr myndasafni Austra og er tekin árið 1995 eða 1996. Ljósmyndari er óþekktur.

Danshópurinn Firðrildin sýnir þjóðdansa á sýningu Útileikhússins í Egilsstaðaskógi. Á myndinni má þekkja Þráinn Skarphéðinsson og Gunnhildi Ingvarsdóttur, Eirík Elísson og Ingigerði Benediktsdóttur, Magna Björnsson og Helgu Gunnlaugsdóttur, Bergstein Brynjólfsson og Önnu Heiðu Óskarsdóttur, auk Laufeyjar Ólafsdóttur.

Nr. 16

Tökuár er óvisst en líklegt er að Gunnsteinn Stefánsson hafi tekið myndina.

Vatnamælingamenn við störf. Frá vinstri: Árni Snorrason, Þórhallur Árnason (líklega gestkomandi) Magnús Guðnason og Eberg Elefsen.

Nr. 17

Tökuár óvisst en líklegt er að Gunnsteinn hafi tekið myndina.

Eberg Elefsen, vatnamælingamaður, við aursýnatöku. Myndin er úr myndasafni Gunnsteins Stefánssonar og Huldu Jónsdóttur.

Nr. 18

Myndin er úr myndasafni Gunnsteins Stefánssonar, en ljósmyndari er óþekktur.

Þrír á tali. Jónas Magnússon, bóndi Uppsölum, Gunnsteinn Stefánsson, vatnamælingamaður, og Þórhallur Pálsson, arkitekt. Ekki er vitað við hvaða tækifæri myndin er tekin en trúlega eru mennirnir staddir á fjöllum. Tökuárið er líklega 1985 þar sem sjá má efst í framrúðunni til hægri að bíllinn hefur verið skoðaður það ár.

Nr. 19

Myndin er úr myndasafni Gunnsteins Stefánssonar og Huldu Jónsdóttur og líklegt er að Gunnsteinn hafi tekið myndina. Tökuár er óvisst.

Góðar stundir á fjöllum. Hjónin Sigríður Ólafsdóttir og Magnús Sigurðsson, þá bændur á Úlfstöðum ásamt, Huldu Jónsdóttur á Freyshólum.

Nr. 20

Úr myndasafni Austra. Myndin er tekin árið 1997, en ljósmyndari er óþekktur.

Unnið að landgræðslu á Héraðssandi. Á myndinni eru Guðmar Ragnarsson, bóndi á Hóli, og Guðmundur Karl Sigurðsson, bóndi í Laufási.

Nr. 21

Myndin er frá 1997 og er úr safni Austra. Ljósmyndari: Sigurður Björn Blöndal.

Það eru ekki allir sem eiga hreindýr sem gæludýr. Ungi maðurinn er Marteinn Aðalsteinsson í Klausturseli.

Nr. 22

Myndin er úr safni Austra. Ljósmyndari: Sigurður Björn Blöndal.

Ungir fjármenn í Melarétt 1994. Drengurinn til vinstri á miðri mynd (með sleikipinna) er Egill Gunnarsson frá Egilsstöðum í Fljótsdal. Drengurinn til hægri heitir Elmar Reyr Hauksson og bjó á Hryggstekk í Skriðdal.

Nr. 23

Myndin er úr safni Austra og er frá árinu 1994. Ljósmyndari: Arndís Þorvaldsdóttir.

Gunnþórunn Ingólfsdóttir og Þórdís Sveinsdóttir, húsfreyjur í Fljótsdal, ræða málin í skjóli af Pilsvangi, kaffistofu Kvenfélagsins í Fljótsdal við Melarétt.

Nr. 24

Tökuár óvíst. Ljósmyndari: Anna Ingólfsdóttir.

Prúðbúnir gestir á Café Nielsen. Frá vinstri: Ólöf Blöndal, Jón Kristjánsson, Margrét Einarsdóttir, Ása Jóhannsdóttir, Sigrún Einarsdóttir. Ekki er vitað af hvaða tilefni konur settu upp hatta þennan dag en það gæti verið vegna opnunar myndlistarsýningar.

Nr. 25

Myndin er úr safni Austra. Ljósmyndari: Sigurður Björn Blöndal.

Frá opnun báta-og hestaleigu í Atlavík sumarið 1996.

Nr. 26

Myndin er úr safni Austra. Ljósmyndari: Unnur Sveinsdóttir.

Gripið í prjónana á Útimarkaðinum á Egilsstöðum sumarið 1999. Sú sem heldur um prjónana er óþekkt en verkefnið mun hafa verið að prjóna plögg á sjálfan Lagarfljótsorminn.

Nr. 27

Myndin er úr safni Austra, en ljósmyndari er óþekktur.

Tveir ungir Fljótsdælingar, Ingólfur Friðriksson og Benedikt Hjartarson, kryfja málin í Melarétt haustið 1999.

No 28 2