Tilþrif í svigi á Skíðamóti Austurlands sem haldið var á Fagradal í byrjun áttunda áratugar 20. aldar.
Óþekkt skíðakona sýnir listir sínar á Fagradal.
Áhorfendur fylgjast með keppendum. Lengst til vinstri er Steinar Þórðarson(?).
Göngugarpar í startholunum.
Skíðafólk dreift um svæðið. Guðmundur Hersir (?) fyrir miðri mynd.
Guðjón Sæmundsson bílstjóri á Seyðisfirði með Erlu dóttur sína. Í baksýn gamla brúin á Eyvindará.
Þorbjörn Arnoddsson á leið yfir Fjarðarheiði á snjóbíl sem nefndur var Vísill.
Snjógöng sem þessi voru algeng sjón síðla vetrar á Fjarðarheiði. Bílinn átti Guðjón Sæmundsson og það eru kona hans Kittý og dóttir hans Erla sem standa við bílinn.
Sportlegar Blómarósir stilla sér upp við rennilegan farkost. Stúlkurnar á myndinni heita Hugrún Ólafsdóttir og Kolbrún Ingimundardóttir.
Starfsmenn Stáls á Seyðisfirði. F.v. Eiríkur Sigurðsson, Sigurður Eyjólfsson, Hjálmar Níelsson og Guðjón Sæmundsson.
Vélsmiðjan Stál og bílakostur hennar árið 1974.
Stutt var að sækja sjóinn frá Skaftabæ . Fram kemur í Húsasögu Seyðisfjarðar að Skaftabær hafi verið 40 fermetrar að stærð, byggður 1884 og hlotið nafn af fyrsta eiganda sínum Skafta Sveinssyni sem m.a. var vatnsberi að atvinnu.
Seyðfirðingurinn og Þúsundþjala smiðurinn Vilbergur Sveinbjörnsson á sjó.
Á bryggjunni er heilsast og kvaðst og oft verða þar fagnaðarfundir. Fólkið er óþekkt.
Fimleikar iðkaðir á þvottahjalli. Samkvæmt upplýsingum frá Margréti Jónsdóttur er myndin tekin í Hlíðargötu í Neskaupstað á 7. áratug 20. aldar. Margrét telur að annar drengjanna á myndinni sé annar sonur Vilbergs (sem tók myndin), Símon Hrafn eða Tómas Lárus.
Þegar vorar eru þríhjólin tekin fram. Myndinni fylgja þær upplýsingar að hér séu þær Svava og Sigga Frissa á ferðinni.
Frissi, Helga og Sveina í sveitinni.
Vormenn Íslands, Sveinbjörn Orri Jóhannsson, Sigurður Mikaelsson og Ólafur Vignir Sveinsson.
Vilbergur í góðum félagsskap á Sigló.
Lilla og Dísa Björg, seyðfirskar hnátur í sunnudagsskrúða.
Hér er setið að veisluborði í tjaldi. Árið er 1910 og tilefnið fermingarveisla með fjölbreyttu bakkelsi. Þó nokkrir við borðið eru þekktir, s.s. Jón Þórarinsson, Guttormur Vigfússon og Stefán Guttormsson.
Ingibjörg Einarsdóttir frá Fjallsseli í fermingarkjólnum árið 1923. Sokkana, sem voru útprjónaðir úr eingirni, prjónaði hún sjálf.
Fyrstu áratugi síðustu aldar fermdust stúlkur oft í hvítum síðum kjólum. Myndin er tekin 1940 og heitir fermingarstúlkan Ragnheiður Stefánsdóttir og er frá Krossi í Mjóafirði.
Uppábúinn fermingardrengur árið 1968. Myndin er af Jóni Þórðarsyni sem nú gegnir starfi sveitarstjóra á Borgarfirði-eystri.
Á sjötta áratug 20. aldar fóru fermingarkirtlar að ryðja sér til rúms. Þeir náðu fljótlega vinsældum og gáfu kvenfélög oft fermingarkirtla til kirkju sinnar til mikils hagræðis fyrir sóknarbörnin. Myndin er tekin árið 1958 og heitir fermingarstúlkan Ágústa Þorkelsdóttir, nú húsfreyja á Refstað í Vopnafirði.
Pálína Waage í verslun sinni. Þar var vöruúrvalið fjölbreytt og aðal áherslan lögð á fatnað og vefnaðarvörur. Fram eftir síðustu öld var fermingin vígsla inn í fullorðinsárin og þótti sjálfsagt að stúlkur byrjuðu þá að klæða sig að hætti ungra kvenna og eignuðust sína fyrstu nylon sokka og brjóstahaldara.
Frænkurnar Þórunn Vilhjálmsdóttir og Steinunn Jónsdóttir, heimasætur í Möðrudal. Myndin er tekin á fermingardegi þeirra árið 1954. Trúlega eru kjólarnir sem þær bera með sóma heimsaumaðir, undirkjólarnir búðarflíkur úr prjónasilki og permanettið heimafengið.
Myndin sýnir elstu börn hjónannna Metúsalems J. Kjerúlf og Guðrúnar Jónsdóttur á Hrafnkelsstöðum í Fljótsdal. Þau eignuðust 16 börn og komust 12 þeirra til fullorðinsára. Þrátt fyrir mikið annríki hefur fundist tími til að sauma út fallega kraga til að skreyta fötin með og stúlkurnar hafa slaufur í hári.
Heimilisfólkið á Hrafnkelsstöðum um miðja síðustu öld. Á myndinni má m.a. sjá afkomendur barnanna á myndinni hér á undan. Lengst til hægri eru hjónin Guðrún og Metúsalem.
Magnea Jónsdóttir í Sauðhaga á Völlum með börn sín: Önnu, Ingibjörgu, Pál, Björn og Magnús. Yngsti sonurinn Jón mun ekki vera fæddur þegar myndin er tekin um 1930.