Horft í linsur Kadettsins og Konna
Myndir eftir Guðmund R. Jóhannsson og Hákon Aðalsteinsson. Birt 2011
![](/templates/yootheme/cache/b9/Mynd%20nr%2001-b964a158.jpeg)
Nr. 1
Kornrækt í Vallahreppi árið 1963. Til vinstri stendur Benedikt Alfreðsson frá Víkingsstöðum. Bjarni Árnason frá Litla-Sandfelli ekur dráttarvélinni.
![](/templates/yootheme/cache/f7/Mynd%20nr%2002-f71ec366.jpeg)
Nr. 2
Kirkjan á Valþjófsstað í byggingu. Við hlið hennar gefur að líta gömlu timburkirkjuna. Myndin er tekin snemma á 7. áratugnum en nýja kirkjan var vígð árið 1966.
![](/templates/yootheme/cache/77/Mynd%20nr%2003-771fa7d6.jpeg)
Nr. 3
Í nokkur ár 7. áratug síðustu aldar rak Kaupfélag Héraðsbúa svokallaða Garnastöð yfir vetrartímann og var hún til húsa í Sláturhúsinu á Egilsstöðum. Þar var hráefnið kindagarnir sem eftir þrif og meðhöndlun voru notaðar við matvælaframleiðslu. Hér er Guðbjörg Erlendsdóttir við störf.
![](/templates/yootheme/cache/c5/Mynd%20nr%2004-c57080e7.jpeg)
Nr. 4
Sýnishorn af framleiðslu Garnastöðvarinnar.
![](/templates/yootheme/cache/76/Mynd%20nr%2005-76200859.jpeg)
Nr. 5
Verkstjóri í garnavinnslunni var Gunnlaugur Kjerúlf.
![](/templates/yootheme/cache/8b/Mynd%20nr%2006-8b19e692.jpeg)
Nr. 6
Lagarfoss eða Kirkjubæjarfoss eins og hann var oft nefndur fyrr á tíð (tökuár óvíst).
![](/templates/yootheme/cache/0c/Mynd%20nr%2007-0c75463b.jpeg)
Nr. 7
Verslunarhús KHB eins og það leit út áður en húsnæði sem hýsti lager og naglabúð var reist um miðjan 7. áratug 20. aldar.
![](/templates/yootheme/cache/92/Mynd%20nr%2008-92fdebeb.jpeg)
Nr. 8
Haraldur Magnússon í Mjólkurstöðinni dælir á „Moskann“ (tökuár óvíst).
![](/templates/yootheme/cache/1b/Mynd%20nr%2009-1b4ac370.jpeg)
Nr. 9
Hákon Aðalsteinsson og frítt hestefni. Athygli er vakin á hvítri nylon skyrtu og lakkerísbindi sem segja má að hafi verið nokkurs konar einkennisbúningur ungra manna á 7. áratugnum þegar haft var tilhald um hönd (tökuár óvíst).
![](/templates/yootheme/cache/3c/Mynd%20nr%2010-3c64e671.jpeg)
Nr. 10
Hestamenn við sláturhúsið á Egilsstöðum. Frá vinstri: Hallgrímur Bergsson, Gunnar Egilson, Ármann Guðmundsson og Bjarni Einarsson. Myndin er tekin í kringum 1963.
![](/templates/yootheme/cache/8f/Mynd%20nr%2011-8f346ecf.jpeg)
Nr. 11
Til hægri stendur Sigurður Einarsson, sem um árabil afgreiddi í sláturhúsi KHB. Maðurinn til vinstri er Hallbjörn Þórarinsson frá Hrafnabjörgum í Jökulsárhlíð.
![](/templates/yootheme/cache/05/Mynd%20nr%2012-050ab092.jpeg)
Nr. 12
Jóhann Kröyer starfsmaður KHB situr í rólegheitum að snæðingi. Sætið er forláta peningaskápur sem beið þess að fá sitt pláss á skrifstofu Kaupfélagsins (tökuár óvíst).
![](/templates/yootheme/cache/bf/Mynd%20nr%2013-bfec7407.jpeg)
Nr. 13
Jón Bergsson bóndi á Ketilsstöðum fyrir framan „Deddasjoppu“ sem stóð á milli verslunarhúss KHB og Símstöðvarinnar (tökuár óvíst).
![](/templates/yootheme/cache/b7/Mynd%20nr%2014-b77693e8.jpeg)
Nr. 14
Þegar Söluskáli KHB á Egilsstöðum var byggður heyrði „Deddasjoppan“ sögunni til. Einn af þeim sem kom að byggingu skálans var Sveinn Guðbrandsson sem var einn af frumbyggjum Egilsstaða (tökuár óvíst).
![](/templates/yootheme/cache/29/Mynd%20nr%2015-29010200.jpeg)
Nr. 15
Hrólfur Kristbjörnsson frá Haugum í Skriðdal og dóttir hans Málfríður við afgreiðsluborðið í söluskálanum. Afgreiðslustúlkan er Guðlaug Stefánsdóttir. Á 7. áratugnum þótti sjálfsagt að mæta í vinnuna með rúllur í hárinu ekki síst þegar helgi var í nánd (tökuár óvíst).
![](/templates/yootheme/cache/dd/Mynd%20nr%2016-dd8ea0e0.jpeg)
Nr. 16
Fólk á leið í sumarfrí. Plássið er nýtt til hlýtar og farangurinn settur á toppinn. Allir á myndinni eru óþekktir (tökuár óvíst).
![](/templates/yootheme/cache/67/Mynd%20nr%2017-67686475.jpeg)
Nr. 17
Dæmigerðar tjaldbúðir ferðamanna frá 7. áratugnum. Konan er óþekkt (tökuár óvíst).
![](/templates/yootheme/cache/60/Mynd%20nr%2018-60e9981f.jpeg)
Nr. 18
Brúðkaup í Möðrudal. Brúðhjónin eru Þórhallur Jónsson og Ragna Guðmundsdóttir (tökuár óvíst).
![](/templates/yootheme/cache/70/Mynd%20nr%2019-7057e13e.jpeg)
Nr. 19
Flutningabíll frá Ingimar Þórðarsyni á hvolfi í Skriðdal. Verið var að flytja hey sem keypt var vegna heyskorts í kjölfar kals í túnum veturinn 1964-1965. Bílnum ók Örn Þorleifsson sem þá starfaði sem ráðunautur hjá Búnaðarsambandi Austurlands og hafði tekið að sér starfið vegna forfalla. Slapp hann með skrámur.
![](/templates/yootheme/cache/c0/Mynd%20nr%2020-c0b0e8fe.jpeg)
Nr. 20
![](/templates/yootheme/cache/d9/Mynd%20nr%2021-d9b8ddf4.jpeg)
Nr. 21
Krossinn í Njarðvíkurskriðum. Drengurinn sem horfir til himins er Aðalsteinn Hákonarson (tökuár óvíst).
![](/templates/yootheme/cache/cd/Mynd%20nr%2022-cde2960a.jpeg)
Nr. 22
Togarinn Port Vale frá Grimsby á strandstað við Héraðssand rétt austan við ósa Lagarfljóts. Strandið varð þann 27. október 1974. Björgunarsveitir frá Borgarfirði eystra, Eskifirði og Egilsstöðum komu fljótlega á staðinn og björguðu skipverjunum 18 í land. Skipið skemmdist lítið og var skömmu síðar losað af strandstað og dregið til Seyðisfjarðar og þaðan til Bretlands.
![](/templates/yootheme/cache/33/Mynd%20nr%2023-33528e07.jpeg)
Nr. 23
Börn að leik í sumarbúðum kirkjunnar í barnaskólanum á Eiðum fyrir daga Kirkjumiðstöðvarinnar. Konan með boltann er séra Jóhanna Sigmarsdóttir (tökuár óvíst).
![](/templates/yootheme/cache/25/Mynd%20nr%2024-25be9cb0.jpeg)
Nr. 24
Flutningar í Fellum. Allir óþekktir utan þess að talið er að Eðvald Jóhannsson standi við aftari bílinn. Allar upplýsingar eru vel þegnar (tökuár óvíst).
![](/templates/yootheme/cache/32/Mynd%20nr%2025-326d2188.jpeg)
Nr. 25
Fyrsta skóflustungan tekin að Egilsstaðakirkju 1. júní 1968. Frá vinstri: Kristján Magnússon, Guðmundur Þorleifsson, Guðrún Lára Ásgeirsdóttir, séra Ágúst Sigurðsson, Sigurbjörn Einarsson, biskup, Sigríður Fanney Jónsdóttir og Þórður Benediktsson. Heiðursvörð standa skátar úr skátafélaginu Ásbúum.
![](/templates/yootheme/cache/56/Mynd%20nr%2026-565d9ef9.jpeg)
Nr. 26
Gamla flugbrautin á aurunum neðan við prestsetrið Eydali í Breiðdal. Í baksýn er kirkjan í Eydölum sem vígð var árið 1975. Litlu aftar sést gamla kirkjan sem brann árið 1982 (tökuár óvíst).
![](/templates/yootheme/cache/7b/Mynd%20nr%2027-7b6983e4.jpeg)
Nr. 27
Á leið á Atlavíkursamkomu með óvæntri viðkomu í Kliftjörn í Hallormsstaðaskógi (tökuár óvíst).
![](/templates/yootheme/cache/d1/Mynd%20nr%2028-d1dd0623.jpeg)
Nr. 28
Jónas Einarsson, starfsmaður í vöruafgreiðslu Flugfélagsins á Egilsstaðaflugvelli til margra ára, ásamt Sigrúnu Brynjólfsdóttur frá Ekkjufelli. Sigrún vann í afgreiðslu Flugfélagsins á árunum 1966-1967 (tökuár óvíst).