Skip to main content

admin

Þjónusta

Skjalasafn – Ljósmyndasafn – Fræðibókasafn

Héraðsskjalasafn Austfirðinga er opinbert skjalasafn, rekið af átta sveitarfélögum á Austurlandi allt frá Djúpavogshreppi í suðri til Vopnafjarðarhrepps í norðri. Safnið varðveitir fjölbreytt gögn: opinber skjöl, einkaskjöl, ljósmyndir, fræðibækur og tímarit.

Skjalasöfn sveitarfélaga – skilaskyldir aðilar

Megin hlutverk Héraðsskjalasafnsins er að taka við, skrá og varðveita skjöl frá aðildarsveitarfélögum sínum og stofnunum á þeirra vegum, svo sem skólum. Safnið hefur eftirlit með skjalavörslu þeirra aðila sem skylt er að afhenda skjöl sín til safnsins og veitir ráðgjöf á því sviði. Skoða leiðbeiningar fyrir afhendingarskylda aðila.

Einkaskjalasöfn – skjöl félaga og einstaklinga

Héraðsskjalasafnið tekur einnig við einkaskjalasöfnum frá einstaklingum, félögum og fyrirtækjum. Má þar nefna bréf, dagbækur og ljósmyndir frá einstaklingum og gjörðabækur, stofnskrár og önnur gögn frá félagasamtökum. Af slíku efni er jafnan mikill fengur enda oft að finna í því upplýsingar um samfélög liðins tíma sem ekki er að finna í skjalasöfnum opinberra aðila. Æskilegt er að hafa samband við safnið áður en skjölin eru afhent.

Fræðibókasafn

Héraðsskjalasafn Austfirðinga hefur þá sérstöðu meðal héraðsskjalasafna að búa yfir veglegu fræðibóka- og tímaritasafni. Lögð er áhersla á að kaupa bækur um ættfræði og héraðssögu Austurlands en einnig um byggða- og félagssögu Íslands almennt. Nánari upplýsingar um bókasafnið.

Lestrarsalur

Almenningur, skólanemendur og fræðimenn geta nýtt sér lestraraðstöðu á safninu. Opnunartíminn er mánudaga til fimmtudaga kl. 12-16 eða eftir samkomulagi.

Upplýsingaleit

Starfsfólk Héraðsskjalasafnsins aðstoðar við að finna upplýsingar í gögnum sem eru í vörslu þess. Hvort sem um er að ræða skjöl, ljósmyndir, bækur eða tímarit.

Gagnlegar heimildir á netinu

Ýmsar skrár og stafrænar endurgerðir af skjölum og ritum eru aðgengilegar á vef Þjóðskjalasafns Íslands, Landsbókasafns Íslands og hjá fleiri aðilum.

Bækur.is (myndir af gömlum íslenskum bókum)
Dómabækur
Gegnir (samskrá íslenskra bókasafna um bækur, tímarit, tímaritsgreinar, tónlist og myndefni)
Handritavefur
Jarðavefur
Legstaðaskrá
Leitir.is
(vefgátt fyrir safnkost bókasafna og minjasafna (bækur, tímarit, greinar, myndefni, munir og fleira).
Manntöl
Sóknarmannatöl
Tímarit (myndir af leit í völdum tímaritum)
Túnakort