Skip to main content

admin

Átakanlegur hversdagsleiki - Ljósmyndasýning

Sigurlaug Björnsdóttir og Júlía Jónsdóttir hafa opnað sýningu á ljósmyndum frá Tyrklandi.

Sigurlaug Björnsdóttir og Júlía Kristey Höjgaard Jónsdóttir hafa opnað ljósmyndasýningu sem er hluti af lokaverkefni þeirra við Menntaskólann á Egilsstöðum. Þær ferðuðustu til Tyrklands í mars 2016 og voru hjá vinum sínum sem þær kynntust í samstarfsverkefni ME og sex annarra skóla. Myndirnar voru teknar í Ankara og sýna tyrkneskan hversdagsleika ungmenna í skugga átaka, en hryðjuverk voru tíð á þessu tímabili.