Skip to main content

admin

Eftirlýstir Íslendingar á 17. og 18. öld

Sýning með teikningum myndlistarnema af eftirlýstu fólki var opnuð í október. Daníel Daníelsson sagnfræðingur flutti erindi um rannsóknina á bakvið sýninguna.

Miðvikudaginn 30. október kl. 17:30 var opnuð ný sýningar í Safnahúsinu á Egilsstöðum. Sýningin, sem ber yfirskriftina Eftirlýstir Íslendingar á 17. og 18. öld, samanstendur af 30 teikningum nemenda á teiknibraut við Myndlistaskólann í Reykjavík. Teikningarnar voru unnar upp úr lýsingum á eftirlýstu fólki sem birtust í Alþingisbókum Íslands frá miðri 17. öld og undir lok 18. aldar.

Á þessum tíma voru ekki aðrar leiðir færar til að lýsa eftir strokufólki og sakamönnum en að setja saman kjarnyrtar lýsingar á útliti þeirra sem síðan bárust manna á milli. Nú hafa nemar Myndlistarskólans í Reykjavík dregið upp myndir af þessu misindisfólki fyrri tíma og þannig opnað glugga að þessum samfélagskima fortíðarinnar.

Verkefnið er samstarfsverkefni skólans og Daníels G. Daníelssonar sagnfræðings og er sprottið upp úr rannsóknum Daníels fyrir verkefnið ,,Fötlun fyrir tíma fötlunar“. Við opnunina fjallaði Daníel um um rannsóknir sínar og dró meðal annars fram í dagsljósið nokkra eftirlýsta Austfirðinga.

Viðburðurinn er samstarfsverkefni Minjasafns Austurlands, Bókasafns Héraðsbúa og Héraðsskjalasafns Austfirðinga og er styrktur af Alcoa Fjarðaáli.

Aðgangur ókeypis, allir velkomnir. Sýningin mun standa uppi fram að jólum.

eftirlystir mynd