Skip to main content

admin

Ljósmyndaverkefni framhaldið - Áfangaskýrsla

Í byrjun árs 2011 hófst hjá Héraðsskjalasafninu verkefni við skönnun og skráningu ljósmynda og hefur það staðið undanfarin tvö ár. Verkefnið er samstarfsverkefni þriggja héraðsskjalasafna og hefur meginhluti fjárveitingar til þess komið af fjárlögum íslenska ríkisns. Við fjárlagagerð ársins 2013 fékkst framhaldsfjárveiting til verkefnsins sem er því að hefja sitt þriðja starfsár.

Góður gangur hefur verið í verkefninu undanfarin tvö ár og hafa nú þegar verið skannaðar rúmlega 40 þúsund myndir og hátt í 40 þúsund hafa verið fullskráðar. Á árinu sem nú er að byrja verður haldið áfram að skrá og skanna en stóra verkefni þessa árs er uppbygging ljósmyndavefs sem áætlað er að opni síðla árs. Sá viðburður mun verða kynntur nánar þegar þar að kemur.

Þrír starfsmenn starfa að verkefninu. Jóhanna Ingibjörg Sveindóttir og Ólöf Sæunn Valgarðsdóttir voru í byrjun árs ráðnar til að starfa, en báðar hafa þær starfað að verkefninu áður. Magnhildur Björnsdóttir sinnir einnig ljósmyndaverkefninu samhliða öðrum störfum sínum fyrir Héraðsskjalasafnið. 

Í september á liðnu ári var stöðuskýrslu um verkefnið skilað til Mennta- og menningarmálaráðuneytis og Þjóðskjalasafns Íslands:

pdfLjósmyndaverkefni á þremur skjalasöfnum. Skýrsla 2012 . Héraðsskjalasafn Austfirðinga, Héraðsskjalasafn Árnesinga, Héraðsskjalasafn Skagfirðinga (pdf-skjal).