Skip to main content

admin

Stjórnarfundur 10.3. 2011

Stjórnarfundur Héraðsskjalasafnsins 10. mars 2011

Fundurinn var haldinn í Safnahúsinu í Laufskógum 1 á Egilsstöðum og hófst hann kl. 14:00.
Fundargerð ritaði Hrafnkell Lárusson.

Mætt voru: Ólafur Sigurðsson, Páll Baldursson, Ragnhildur Rós Indriðadóttir, Pétur Sörensson, og Hrafnkell Lárusson. Ólafur Valgeirsson var í símasambandi við fundinn.

Formaður setti fund og bauð fundarmenn velkomna.

Dagskrá:

1. Drög að ársreikningi safnsins fyrir 2010
HL kynnti drögin og gerði grein fyrir helstu niðurstöðum þeirra. Fundarmenn ræddu þau.

2. Málefni Bókasafns Halldórs og Önnu Guðnýjar
Fyrir fundinum lá bréf frá Halldóri Árnasyni, dags. 28. janúar sl., vegna málefna Bókasafns Halldórs og Önnu Guðnýjar.
Málið rætt. Stjórn samþykkti einróma eftirfarandi bókun.

Aðalfundur fulltrúaráðs Héraðsskjalasafns Austfirðinga, sem haldinn var 25. nóvember 2010, gerði samþykkt um Bókasafn Halldórs og Önnu Guðnýjar. Samþykktin naut stuðnings yfirgnæfandi meirihluta atkvæða aðalfundarfulltrúa. Núverandi stjórn Héraðsskjalasafns Austfirðinga er bundin af samþykkt aðalfundar.

Forstöðumanni falið að koma bókun stjórnar á framfæri við Halldór Árnason.

3. Önnur mál
a) HL greindi frá viðbrögðum SSA og forsvarsmanna austfirskra sveitarfélaga við drögum að frumvarpi til nýrra laga um Þjóðskjalasafn Íslands. Í þeim viðbrögðum var tekið undir helstu atriði í áður framkominni gagnrýni héraðsskjalavarða á efni frumvarpsdraganna.
b) Verkefni við skráningu, skönnun og frágang ljósmynda hófst hjá Héraðsskjalasafninu í febrúar sl. HL greindi frá framvindu verkefnisins og frá samstarfssamningi Héraðsskjalasafna Austfirðinga, Árnesinga og Skagfirðinga vegna þess.
Stjórn samþykkir samninginn fyrir sitt leyti.


Fleira ekki tekið fyrir, fundi slitið kl. 15:40.

Ólafur Sigurðsson [sign]
Páll Baldursson [sign]
Ragnhildur Rós Indriðadóttir [sign]
Pétur Sörensson [sign]
Ólafur B. Valgeirsson [sign]
Hrafnkell Lárusson [sign]