Skip to main content

admin

Stjórnarfundur 6.4.2020

Stjórnarfundur Héraðsskjalasafns Austfirðinga 6. apríl 2020

Fundurinn var símafundur og hófst hann kl. 10:00.
Mætt voru: Anna Margrét Birgisdóttir, Helgi Bragason, Þorbjörg Sandholt og Bára Stefánsdóttir. Anna stjórnaði fundi og Bára ritaði fundargerð.
Áður boðuðum fundi sem vera átti 30. mars var frestað til þessa dags.

Dagskrá:

1. Reglugerð um rekstur héraðsskjalasafns
Umsögn um reglugerðardrögin sem var til umfjöllunar á stjórnarfundi 24. febrúar var unnin
áfram með tölvusamskiptum og send í samráðsgátt stjórnvalda 13. mars.

2. Sameining Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar
Fyrir fundinum lágu drög að svari við bréfi frá undirbúningsstjórn vegna sameiningar þessara fjögurra sveitarfélaga. Stjórnarmenn samþykktu texta svarbréfsins.

3. Stofnsamningur byggðasamlagsins
Bára kynnti tillögur að breytingum á núgildandi stofnsamningi byggðasamlagsins sem tók gildi 1. desember 2018.
Héraðsskjalaverði falið að vinna málið áfram og leggja fyrir næsta stjórnarfund.

4. Önnur mál
Rætt um næsta stjórnarfund en enginn tími fastsettur. Staðbundinn fundur verður ekki fyrr en samkomubanni vegna covid-19 hefur verið aflétt.

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 11:30.

Anna Margrét Birgisdóttir [sign.]
Helgi Bragason [sign.]
Þorbjörg Sandholt [sign.]
Bára Stefánsdóttir [sign.]