Skip to main content

admin

Sýning á Dögum myrkurs

Dagar myrkurs verða haldnir á Austurlandi dagana 1.-11. nóvember nk. Framlag Safnahússins til þessa viðburðar verður myndasýning sem ber yfirskriftina Þekkir þú myndina?  Myndirnar á sýningunni (sem er í powerpoint-formi) eru frá ýmsum tímum en hluti þeirra sýnir óþekkt fólk og/eða staði. Gestum mun gefast færi á að koma á framfæri upplýsingum um myndirnar. Sýningin verður mánudagskvöldið 5. nóvember í Hlymsdölum (Miðvangi 6 á Egilsstöðum) og hefst hún kl. 20.30. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.