Skip to main content

admin

Ný skýrsla um héraðsskjalasöfnin

Nýverið sendi stýrihópur héraðsskjalavarða um rafræna skjalavörslu og varðveislu frá sér skýrslu sem ber heitið Starfsemi og hlutverk héraðsskjalasafna.

Meginverkefni stýrihópsins er að halda utan um samstarfsverkefnis safnanna, sem ber heitið Miðstöð héraðsskjalasafna um rafræna skjalavörslu (MHR). Hluti af þeirri vegferð er að taka saman upplýsingar á einn stað um héraðsskjalasöfnin, hlutverk þeirra og lagalega stöðu.

Einnig er í skýrslunni fjallað um MHR og hvernig skipa má rafrænni skjalavörslu sveitarfélaganna til framtíðar.

Eftirtaldir héraðsskjalaverðir skipa stýrihópinn, en alls eru 19 héraðsskjalasöfn á landinu aðilar að samstarfinu. Höfundar skýrslunnar eru auðkenndir með feitletrun, en hana má lesa með því að smella hér.

  • Erla Dís Sigurjónsdóttir - Héraðsskjalasafn Akraness
  • Hrafn Sveinbjarnarson - Héraðsskjalasafn Kópavogs
  • Lára Ágústa Ólafsdóttir - Héraðsskjalasafnið á Akureyri
  • Sólborg Una Pálsdóttir - Héraðsskjalasafn Skagfirðinga
  • Stefán Bogi Sveinsson - Héraðsskjalasafn Austfirðinga
  • Þorsteinn Tryggvi Másson - Héraðsskjalasafn Árnesinga