Skip to main content

admin

Stjórnarfundur 6.11.2014

Stjórnarfundur Héraðsskjalasafns Austfirðinga 6. nóvember 2014
Fundurinn var haldinn í Löngubúð á Djúpavogi og hófst hann að loknum aðalfundi safnsins um kl. 15:15.

Mætt voru: Ólafur Valgeirsson, Ragnhildur Indriðadóttir, Björn Hafþór Guðmundsson og Bára Stefánsdóttir.
Aldursforseti, Björn Hafþór, stjórnaði fundi í upphafi og Bára ritaði fundargerð.

Dagskrá:
1.    Verkaskipting stjórnar
Ólafur Valgeirsson bauð sig fram sem formaður og var það samþykkt. Hér tók hann við fundarstjórn. Ragnhildur var kjörin varaformaður og Björn Hafþór meðstjórnandi.

2.    Næsti stjórnarfundur
Boðað verður til fundar þegar ný mál krefjast úrlausnar.

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið um kl. 15:30.

Ólafur B. Valgeirsson [sign.]    
Ragnhildur Rós Indriðadóttir [sign.]
Björn Hafþór Guðmundsson [sign.]     
Bára Stefánsdóttir [sign.]