Skip to main content

admin

Aðalfundur

Aðalfundur fulltrúaráðs Héraðsskjalasafns Austfirðinga bs. var haldinn á Berunesi við Berufjörð 26. október s.l. Óvenjugóð mæting var á fundinn þar mættu fulltrúar allra aðildarsveitarfélaganna nema Breiðdalshrepps.

Fundurinn var haldinn í glæsilegri aðstöðu sem þau bændur á Berunesi Anna Antoníusdóttir og Ólafur Eggertsson hafa byggt við gamalt íbúðarhús þar sem þau reka gistiheimili. Fundargerð aðalfundarins er birt undir fundargerðir á heimasíðunni.