Skip to main content

admin

Aðalfundur 3.11.2016

Aðalfundur Héraðsskjalasafns Austfirðinga árið 2016

Haldinn í Safnahúsinu í Neskaupstað fimmtudaginn 3. nóvember kl. 14.

Ólafur Valgeirsson formaður stjórnar bauð fundarmenn velkomna.
Kristín Ágústsdóttir tók að sér stjórn fundar og Bára Stefánsdóttir ritaði fundargerð.

Fundarstjóri fór yfir mætingu og umboð. Fulltrúar sveitarfélaga á fundinum voru:
    Borgarfjarðarhreppur: umboð til fulltrúa Fljótsdalshéraðs       
    Breiðdalshreppur: Anna Margét Birgisdóttir
    Djúpavogshreppur: umboð til fulltrúa Seyðisfjarðarkaupstaðar       
    Fjarðabyggð: Pétur Sörensson
    Fljótsdalshérað: Óðinn Gunnar Óðinsson           
    Fljótsdalshreppur: Gunnar Gunnarsson
    Seyðisfjarðarkaupstaður: Jónína Brá Árnadóttir           
    Vopnafjarðarhreppur: umboð til fulltrúa Breiðdalshrepps
Björn Hafþór Guðmundsson meðstjórnandi var einnig á fundinum.

Dagskrá:

1.    Skýrsla stjórnar
Ólafur formaður flutti skýrslu um störf stjórnar milli aðalfunda 2015 og 2016. Haldnir voru þrír stjórnarfundir á árinu 2015 og tveir stjórnarmenn sátu fund um safnahúsið í desember.
Bára forstöðumaður kynnti ársskýrslu, sagði frá starfsemi og sérverkefnum á árinu 2015.

2.    Afgreiðsla ársreiknings 2015
Bára fór yfir ársreikning. Rekstrargjöld ársins námu 35,5 millj. og rekstrartekjur 29,4 millj.  Niðurstaða rekstrarreiknings árið 2015 er því rekstrartap uppá 6,1 millj. Þar af eru 5,8 millj. vegna reiknaðrar húsaleigu í safnahúsi og 308 þús. vegna breytinga á áföllnu orlofi. Ekki varð tap af hefðbundnum rekstri. Handbært fé í árslok var 2,7 millj., hækkar um 449 þús. milli ára.
Ársreikningurinn borinn undir atkvæði. Samþykktur með öllum greiddum atkvæðum.

3.    Afgreiðsla fjárhagsáætlunar 2017
Bára fór yfir fjárhagsáætlun og gerði grein fyrir forsendum hennar. Gert er ráð fyrir að rekstrargjöld verði 33,5 millj. Rekstrartekjur verði 27,7 millj., þar af nemi rekstrarframlög aðildarsveitarfélaga 23,7 millj. Héraðsskjalasafnið verði því rekið með 5,8 millj. halla á árinu 2017 sem er sama upphæð og húsaleiga í Safnahúsinu.
Fjárhagsáætlun borin undir atkvæði. Samþykkt með öllum greiddum atkvæðum.

4.    Kjör löggilts endurskoðanda
Stjórn leggur til að Magnús Jónsson hjá KPMG sjái áfram um endurskoðun ársreiknings.
Tillagan var samþykkt samhljóða.

5.    Kjör skoðunarmanna reikninga
Stjórn leggur til að Sigurjón Jónasson og Ómar Bogason verði endurkjörnir skoðunarmenn reikninga. Varamenn verði: Adolf Guðmundsso og Sigurjón Bjarnason.
Tillagan var samþykkt samhljóða.

6.    Önnur mál
Fljótsdalshreppur býður til næsta aðalfundar.

Að loknum aðalfundarstörfum verður dagskrá í tilefni af 40 ára afmæli Héraðsskjalasafnsins.  Þangað mæta boðsgestir auka fundarmanna.

 

Fundargerðin var lesin upp og samþykkt af fundarmönnum. Jafnframt var fundarstjóra og fundarritara falið að undirrita hana.

Fundi var slitið kl. 15.11.


Kristín Ágústsdóttir [sign.]
Bára Stefánsdóttir [sign.]