Skip to main content

admin

Aðalfundur 2017

Aðalfundur Héraðsskjalasafnsins var haldinn á Skriðuklaustri 27. nóvember. Þar voru til umfjöllunar ársreikningur 2016 og fjárhagsáætlun 2018.

Ólafur Valgeirsson formaður flutti skýrslu stjórnar 2016 en auk hans eru Ragnhildur Rós Indriðadóttir og Björn Hafþór Guðmundsson í stjórn. Bára Stefánsdóttir forstöðumaður fór yfir ársreikning fyrir árið 2016 og fjárhagsáætlun 2018 sem var samþykkt af fulltrúum aðildarsveitarfélaganna.

Hér má nálgast fundargerð aðalfundar 2017, skýrslur og áætlanir frá fundinum.