Skip to main content

admin

Stjórnarfundur 14.12.2018

Stjórnarfundur Héraðsskjalasafns Austfirðinga 14. desember 2018

Fundurinn var haldinn í fundarsal Fljótsdalshéraðs föstudaginn 14. desember kl. 14 að loknum framhaldsaðalfundi safnsins.

Mætt voru: Anna Margrét Birgisdóttir og Þorbjörg Sandholt. Helgi Bragason var í símasambandi.
Aldursforseti, Anna Margrét, stjórnaði fundi og Bára ritaði fundargerð.

Dagskrá:

1. Verkaskipting stjórnar
Anna Margrét verður formaður, Þorbjörg varaformaður og Helgi meðstjórnandi.

2. Næsti stjórnarfundur
Boðað verður til fundar þegar ný mál krefjast úrlausnar.

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 14:30.

Anna Margrét Birgisdóttir [sign.]
Helgi Bragason [sign.]
Þorbjörg Sandholt [sign.]
Bára Stefánsdóttir [sign.]