Skip to main content

admin

Stjórnarfundur 14.9.2020

Stjórnarfundur Héraðsskjalasafns Austfirðinga 14. september 2020

Fundurinn var símafundur og hófst hann kl. 16:00.

Mætt voru: Anna Margrét Birgisdóttir, Helgi Bragason, Þorbjörg Sandholt og Bára Stefánsdóttir. Anna stjórnaði fundi og Bára ritaði fundargerð.

Dagskrá:

1. Stofnsamningur, nýjar breytingartillögur
Breytingar á 3. grein um skipun stjórnar og bráðabirgðaákvæði um kosningar 2020 til umræðu.
Stjórn samþykkir fyrirliggjandi breytingar og felur Báru að senda þær til sveitarstjórna til umsagnar.

2. Reglugerð um gjaldskrá
Svar 13 borgar- og héraðsskjalasafna við beiðni mennta- og menningarmálaráðneytis um tillögur vegna væntanlegrar reglugerðar. Lagt fram til kynningar.

3. Persónuverndarfulltrúi
Verðáætlun fyrir tímabundna vinnu persónuverndarfulltrúa fyrir safnið lögð fram til skoðunar. Báru falið að ganga frá samningi við Fljótsdalshérað.

4. Rafræn skjalavarsla
Svarbréf Báru til bæjarráðs Fljótsdalshéraðs um áhrif væntanlegra reglna Þjóðskjalasafns Íslands.
Lagt fram til kynningar.

5. Miðstöð fræða og sögu
Ábendingar Báru til atvinnu- og menningarnefndar Fljótsdalshéraðs um drög að stofnskrá Sigfúsarstofu lagðar fram til kynningar.

6. Önnur mál
Fleiri mál komu ekki fram.

Fundi var slitið kl. 16:40.


Anna Margrét Birgisdóttir [sign.]
Helgi Bragason [sign.]
Þorbjörg Sandholt [sign.]
Bára Stefánsdóttir [sign.]