Skip to main content

admin

Stjórnarfundur 26.11.2020

Stjórnarfundur Héraðsskjalasafns Austfirðinga bs. 26. nóvember 2020

Fundurinn var símafundur og hófst hann kl. 15:00.
Mætt voru: Anna Margrét Birgisdóttir, Helgi Bragason, Þorbjörg Sandholt
og Bára Stefánsdóttir. Anna stjórnaði fundi og Bára ritaði fundargerð.

Dagskrá:

1. Stofnsamningur

Farið yfir nýjar breytingartillögur vegna ábendinga frá sveitarfélögum og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti. Áður hefur stjórn sent breytingartillögur sem voru samþykktar á stjórnarfundum 15. júní og 14. september til sveitarfélaganna til skoðunar og umsagnar.

Stjórn samþykkir fyrirliggjandi breytingar á stofnsamningi. Báru falið að senda heildarbreytingar á samningnum til aðildarsveitarfélaganna ásamt skýringum. Tillögurnar verða lagðar fyrir aðalfund byggðasamlagsins í desember.

2. Aðalfundur

Aðalfundur verður haldinn á Egilsstöðum föstudaginn 11. desember kl. 13.


Fundi var slitið kl. 15:55.


Anna Margrét Birgisdóttir [sign.]
Helgi Bragason [sign.]
Þorbjörg Sandholt [sign.]
Bára Stefánsdóttir [sign.]